06.05.2006 - 2ja ára
Hæ hæ. Það er aldeilis að tíminn líður hratt, maður er bara orðinn 2ja ára, sjálfstæður og getur allt :-) Frá því að síðast var skrifað hefur mikið gerst. Ég er kominn í sér herbergi og gengur bara rosa vel, bæði er ég farinn að sofa betur og mamma og pabbi líka. Mömmu og pabba fannst nú svolítið einmanalegt að hafa mig ekki hjá sér en við erum öll búin að venjast þessu. Mamma útskrifaðist úr skólanum í febrúar og nú erum við fjölskyldan farin að geta átt meiri tíma saman, sem mér finnst alveg ofboðslega gaman :o) Í sumar fáum við svo loksins frí saman og ætlum að skella okkur til útlanda. Við erum búin að panta okkur ferð til Spánar, þar sem við ætlum að njóta lífsins með Helgu ömmu, Sturlu afa, Hildi og Hödda í tvær vikur.
Ég er svo búinn að fá leikskólapláss í sumar á leikskólanum Jörfa, en við förum stundum þangað um helgar og leikum okkur þar. Það verður örugglega rosalega gaman á leikskólanum þó ég eigi eftir að sakna Döbbu dagmömmu og krakkanna þar. Það er þó huggun að þeir krakkar sem ég mest með hjá Döbbu eru líka að hætta í sumar.
Mamma og pabbi eru að reyna að venja mig á koppinn en það gengur ekki allt of vel. Ég er svosem duglegur að sitja á koppnum en yfirleitt endar pissið nú á gólfinu :-p Mér finnst það samt frekar ógeðslegt og þar sem ég er nú farinn að tala soldið, þá er ég fljótur að tilkynna mömmu og pabba það :-)
Ég er gjörsamlega gröfuóður og get leikið mér endalaust með gröfurnar mínar. Ég leita líka uppi allar gröfur í bænum þegar ég er úti að keyra með mömmu og pabba og tilkynni öllum hátt og snjallt um þær, svo enginn missi nú af :0) Við vorum um daginn í heimsókn hjá Helenu Sirrý, 9 mánaða vinkonu minni, sem var að flytja í nýja íbúð. Þar var grafa að moka úti og ég vildi helst vera úti á svölum allan tímann að horfa á hana. Helst vil ég vera með gröfu í hendinni allan daginn og þegar við pabbi förum út á morgnanna þá tek ég gröfuna með í bílinn en geymi hana þar á meðan ég er hjá Döbbu. Síðan þegar pabbi kemur heim eftir vinnu þá hleyp ég til hans og kalla pabbi grafa! Veit ekki hvort er betra að fá pabba eða gröfuna heim :-)
2ja ára afmælisveislan mín var síðastliðinn laugardag. Þetta var heljarinnar veisla, pylsur, kökur og grænmeti til vega upp á móti óhollustunni. Húsið var fullt af ættingjum og vinum og mikið stuð en helíum blöðrurnar sem pabbi keypti vöktu samt mesta lukku. Ég fékk að sjálfsögðu fullt af gjöfum en hafði ekki tíma til að opna þær fyrr en um kvöldið og daginn eftir. Takk fyrir mig.
Jæja, ég hef þetta ekki lengra í bili, hafið það gott,
Ísak Árni gröfukarl.
7. March 2007 - 16:18
Athugasemdir