01.08.2005 - Labba
Halló allir saman :-)
Loksins gefa mamma og pabbi sér tíma til að skrifa fyrir mig, þetta er nú algjör skandall!!! Á síðastliðnu hálfu ári hefur svo margt gerst, ég stækkað og þroskast svo ótrúlega mikið svo að mamma getur bara stiklað á stóru.
Í lok febrúar byrjaði ég á framhaldsnámskeiði í sundi. Mamma og pabbi voru hrædd um að ég hefði gleymt miklu því að þau hafa ekki verið dugleg að fara með mig í sund, en ég hafði engu gleymt og fór í kaf eins og ekkert væri. Núna er ég mikill sundgarpur og finnst æðislega gaman að fara í rennibrautir. Í síðasta tímanum var ég svo veikur, týpískt því ég hafði ekki misst af neinum tíma, en þá voru teknar myndir í kafi. Ágústa sundkennari sagði okkur bara að koma í lok næsta námskeiðs og fá myndatöku þá.
Í byrjun mars fór ég svo í myndatöku hjá brosbörnum og stóð mig eins og hetja. Brosti hringinn allan tímann og sýndi alls kyns kúnstir, myndirnar eru líka alveg frábærar. Myndatakan gat nú ekki klikkað með svona góða fyrirsætu :-).
Ég byrjaði hjá Döbbu dagmömmu í byrjun apríl, var þá til tvö á daginn og ömmurnar voru svo frábærar að þær skiptust á að sækja mig út apríl. Ég var nú ekkert alltof hrifinn af því að vera skilinn svona eftir og það tók tíma fyrir mig að venjast þessu en fannst samt spennandi að leika við krakkana. Reyndar var mamma með mig heima í maí og svo byrjaði ég aftur hjá Döbbu í júní, pínulítið vesen og erfitt að þurfa að fara tvisvar í aðlögun en ég var mun jákvæðari í seinna skiptið. Núna finnst mér frábært að vera úti að leika og vil helst vera úti á róló hjá Döbbu allan daginn.
Þann 15. apríl varð ég eins árs en þar sem mamma var í próflestri var ekki hægt að hafa almennilegt afmæli fyrir mig þá. Hildi frænku fannst samt ómögulegt að ég myndi ekki fá afmælistertu á afmælisdaginn sjálfan svo að hún bakaði svakalega flotta köku fyrir mig. Ömmurnar, afarnir, Hildur og Hörður komu í mini afmæli og gæddu sér á afmæliskökunni. Þetta var bara stutt boð því að mamma þurfti að halda áfram að læra. Þegar mamma var búin í prófunum var svo haldin almennileg afmælisveisla með fullt af gestum, kökum og blöðrum. Svakalegt stuð :-)
Mamma og pabbi skelltu sér til New York seinni partinn í maí og þá gisti ég hjá ömmu og afa í Sigluvoginum. Það gekk mjög vel en ég held samt að amma og afi hafi verið ansi þreytt eftir pössunina!!!! Mamma og pabbi voru úti í rúma 4 daga og skemmtu sér vel en söknuðu mín samt ofsalega mikið (enda fékk ég mikið dót þegar þau komu heim, alltaf að hugsa um mig). Þau voru mikið búin að spá í því hvernig ég myndi bregðast við að sjá þau. Fyrst þá var ég svo hissa og horfði bara á þau til skiptist en síðan vildi ég komast til þeirra og passaði þau vel eftir þetta ;-). Pabbi náði þessu öllu saman upp á video og það er ótrúlegt að sjá svipinn á mér :-)
Þegar ég var 14 mánaða byrjaði ég að labba um allt, var reyndar farinn að taka nokkur skref um 12 mánaða en fór svo alltaf niður á hnén og skreið :-( Þetta kom allt í rólegheitunum en mömmu og pabba finnst þetta vera algjör lúxus núna þegar ég labba um allt, miklu auðveldara að fara með mig. Svo er ég líka með æðislega krúttlegt göngulag :-).
Í sumar höfum við verið á faraldsfæti, búin að fara á ættarmót, 2 upp í sumarbústaðinn í Botni og oft upp í Kjós. Mér finnst rosalega gaman að vera í sveitinni og mikið stuð að fá að henda steinum í ána. Í síðustu viku fórum við upp í bústað með Herdísi, systur hans pabba, og hennar fjölskyldu. Veðrið var ótrúlegt og ég var bara á stuttbuxum allan tímann! Jakob og Rafnar eru SVO skemmtilegir og duglegir að leika við mig, ég hermdi náttúrulega eftir öllu sem þeir gerðu og var gjörsamlega úrvinda á kvöldin eftir allt stuðið. Það var ýmislegt brallað, m.a. farið í gilið, golf, sund, farið í pottinn, róla, moka.........algjör sæla :-).
Ég er alltaf svo yndislegur og geri ýmsa krúttlega hluti eins og að þefa af öllum blómum sem ég sé! Síðan er ég ennþá mikill knúsukarl og knúsa alla við mismikinn fögnuð, mömmu og pabba finnst það æðislegt en litlir krakkar og dýr eru ekki alveg á sama máli! Núna er ég að byrja að tala aðeins, segi t.d. takk í tíma og ótíma og reyni að herma eftir öllu sem mamma og pabbi segja þó yfirleitt geti ég bara bablað. Flugvélar eru nýjasta æðið og ég hleyp út í glugga ef ég heyri í þeim og vinka á fullu. Ég er líka mikill boltastrákur og finnst æðislegt að sparka í bolta, pabba líka!!!
Svona í lokin fréttir af öðrum en mér, Fríða vinkona hennar mömmu eignaðist litla prinsessu á laugardagskvöldið með látum! Sú litla kom 6 vikum fyrir tímann í heiminn og var um 8 merkur, pínulítið krútt :-).
Bið að heilsa öllum og lofa að láta mömmu og pabba skrifta oftar.
Sumarkveðjur, Ísak Árni orkubolti.
7. March 2007 - 16:17
Athugasemdir